Wednesday, 15 June 2011

Vatnsrigning


Það rignir. "Hvar?", spyrjið þið í örvæntingu, "hvar Gudda? Þú sem ferðast svo mikið um heiminn." Jú, satt er það, ekki get ég neitað því. En svar mitt við þessari spurningu er: í borg loftsins góða, hinni fögru heimsborg Amríku, Buenos Aires. Og vissulega er loft hennar hreint því kraftur guðanna dembir yfir okkur þrumum svo vér megum hræðast, eldglæringum svo sýn okkar fái nýjan kraft og baðar okkur síðan, endurfædd, í tærum vatnsflaumi. Á götunum renna stórfljót. Stígvélunum gleymdi ég heima. Ég trítla mér örlítinn spöl um bæinn. Heimilislaus maður með tvær tennur stoppar mig og spyr: "What is time?" Ég vil að sjálfsögðu gera manninum ljóst að ég er altalandi á hans tungu, dreg upp farsímann og svara alúðlega: "Son las doce menos tres, señor." "Twelve o'clock," svarar þá maðurinn. " Jú maður minn, rétt er það," segi ég, á lýtalausri kastilísku auðvitað. "Thank you, my friend." "Það var alveg sjálfsagt góði og hafðu það gott og vertu blessaður." Svona eru okkar minnstu bræður vel menntaðir hér í borg.
Er ég gúffa í mig pitsu á veitingastað ekki langt frá (það er að sjálfsögðu lítil einstaklingspitsa sem hentar dömu) kemur að mér kona. Þetta er svokölluð betlikerling með grófa mjaltastúlkuslæðu um höbbðið. Hún liðast aftan að mér og guðar útjaskaðri stílabók, stærð A5 með gormum, að mér. Mér bregður heldur við, lít í andlit konunnar, virði síðan fyrir mér stílabókina og reyni að stauta mig fram úr því sem þar stendur. Lít spyrjandi á konuna. Hún tekur að fletta síðum og benda mér á hitt og þetta pár í bókinni og líkur þessari sýningu á blaðsíðu með nöfnum á fólki. Hverju nafni fylgir peningaupphæð og heillaóskir. Nú hef ég staldrað það lengi við í nærveru konunnar (eða öllu heldur: ekki rekið hana nógu snemma úr minni nærveru) til að senda hana fjárlausa út á gvuð og gaddinn. Raunar finnst mér þetta þrælsniðugt fjáröbblunarprógramm og víla mér ekki við að gauka að henni aur. Hugsa sér: mæta með gestabók, vinda sér að næsta manni og tauta: gjörðu svo vel að gefa mér pening og þá færðu að skrifa hér í gestabókina mína og fá stað- og skjalfestingu á gæsku þinni.

2 comments:

  1. Oh það er ekki laust við að ég fái heimþrá að lesa þetta :)

    ReplyDelete
  2. Je dúdda mía Gudda mín ! Passaðu þig nú í útlandinu og sérstaklega á öllum útlendingunum ... ;) Peysan, bjórin og ég vonumst til að hitta þig þegar þú kemur aftur á klakann :) Knús Mæja

    ReplyDelete