
Það er farið að gjósa. Í næsta sveitarfélagi er fólki ráðlagt að halda sig inni við og troða blautum tuskum í alla hurða- og gluggakarma. Margar matvöruverslanir hafa þurft að loka og eldsneyti er ekki á hverju strái. Eldfjallið er í 100km fjarlægð frá bænum, í næsta landi, en öskuskýið hefur ferðast austur yfir fjallgarðinn og dembir sér yfir þennan helsta ferðamannastað svæðisins. Hljómar kunnuglega...en samt ekki. Hér er nefnilega ekki um að ræða Grænuvötn né Eyjafjallajökul og heldur ekki Kötlu. Ó nei, ég er að tala um hið chílenska eldfjall Puyehue. Já, dömur mínar og herrar, hér á suðurhveli jarðar (þar sem fólk labbar á hausnum) gjósa eldfjöll og trufla skíðaferðatúrista. Sama böggið alls staðar. Að vísu er ég ekki stödd í Bariloche þar sem öskufallið var sem mest, en ansi nærri. Það hittist reyndar svoleiðis á hjá okkur "mæðgunum" að við höfðum planað smá helgarferð til Bariloche en ákváðum á síðustu stundu að breyta planinu og fara heldur til Neuquén (höfuðborgar fylkisins Neuquén) þar sem gamla þurfti að leita sér lækninga. Heppnar. Annars hefði ég bæði upplifað öskufall og lært á skíði í téðum bæ, Bariloche í Argentínu!
Jahérnahér!
ReplyDeleteÞurfti nú að líta á interweb landakort til að átta mig á stöðunni:
http://maps.google.com/maps?q=map+blogurl:http:%2F%2Fearthquake-report.com&ie=UTF8&hl=en&sll=-40.813809,-66.313477&sspn=8.877996,19.753418&rq=1&ev=zi&split=1&hq=map+blogurl:http:%2F%2Fearthquake-report.com&hnear=&ll=-40.813809,-66.313477&spn=8.877996,19.753418&z=6
Það greinilega hitnar í kolunum hvert sem þú ferð! Verður þó vonandi laus við eldumbrot í jörðu í Póllandsdvölinni.
Fagna bloggframtaki þínu heilshugar! Mun sitja um færslurnar ;)
xx þín S
Takk fyrir áhugann, Sigrún mín. Og ekki veigrarðu þér við að lesa þér til! Jú, það varð svo heitt í kolunum skal ég segja þér að háæruvert eldfjall stöðvaði mig við brottför og heldur mér nú nauðugri frá fjölskyldu minni sem grætur mig frá borg rómansins, París.
ReplyDeleteHabbðuða sem allta best, kæra :x